Gulvíðir – Salix phylicifolia

Harðgerður íslenskur runni. Hæð er mjög breytileg en finnst sums staðar allt að 5 m hár eða meir. Algeng hæð er 1-2 m. Myndar gjarnan hálfkúlulaga/hvelfda runna þar sem hann vex villtur og ekki er beit. Sprotar rauðbrúnir eða gulgrænir. Greinar gráar. Laufið lensulaga eða oddbaugótt og gljáandi. Gulir haustlitir. Meira og minna hárlaus. Gulvíðir vex villtur um land allt upp í 550 - 600 m.h.y.s. Gulvíðir hentar í limgerði og þyrpingar. Getur vaxið í deiglendi og þar sem vatn liggur yfir hluta úr ári. Gulvíðir hefur sums staðar farið illa af völdum asparglittu. Annars heilbrigður. Hæfilegt millibil í limgerðum er 30 - 50 sm. Annars allt að 1 m. Við í Þöll framleiðum gjarnan gulvíði af fallegum einstaklingum sem við finnum í náttúrunni. Sjá einnig strandavíði sem er karlkyns yrki af gulvíði. Náttúruleg heimkynni gulvíðis auk Íslands eru N-Evrópa og V-Síbería.

Hafþyrnir – Hippophae rhamnoides

Harðgerður, þyrnóttur, lauffellandi, lágvaxinn - hávaxinn runni (1 - 3 m). Laufið lensulaga og grásilfrað. Blómin smá og lítið árberandi. Sérbýll. Kvenplöntur þroska rauðgul, æt ber séu karlplöntur í nágrenninu. Ein karlplanta dugar til að fræva nokkrar kvenplöntur. Vindfrævun. Berin hanga á runnunum langt fram á vetur þar sem fuglar virðast lítið sækja í þau. Sólelskur. Vind- og saltþolinn. Lifir í sambýli við niturbindandi bakteríur (Frankia) sem gerir honum kleift að vaxa í rýrum jarðvegi. Hafþyrnir hefur mjög skriðullt og kröftugt rótarkerfi. Berin eru nýtt í sultur og þess háttar og eru sögð mjög holl og eru t.d. mjög C-vítamínrík. Laufið má nýta í te. Hentar sérlega vel við sjávarsíðuna, til að binda sendinn og malarborinn jarðveg og þess háttar. Þrífst í alls konar jarðvegi en þó ekki blautum. Hafþyrnir hentar í runnaþyrpingar og raðir t.d. á vindasömum stöðum og í villigarða og sumarhúsalóðir. Millibil við gróðursetningu um 1 m. Rótarskot geta verið til ama t.d. nálægt gangstéttum og þess háttar. Fer jafnvel í gegnum malbik! Við höfum verið að prófa okkur áfram með mismunandi yrki og stofna. Finnsku yrkin 'Tytti' (kvk), 'Terhi' (kvk), 'Rudolf' (kk) og 'Tarmo' (kk), fást gjarnan hjá okkur og hafa reynst vel. Einnig eigum við stundum til kvk og kk yrki úr Hallargarðinum, Rvk. Höfum einnig framleitt og boðið upp á íslenskar fræplöntur af hafþyrni. Heimkynni: Kaldtempruð svæði Evrasíu. Í heimkynnum sínum vex hafþyrnir aðallega með ströndum fram og til fjalla. Silfurblaðsætt (Elaeagnaceae)

Heggur – Prunus padus

Harðgert, lágvaxið - meðalhátt tré (5 - 10 m). Ein- eða margstofna. Stundum runni. Blómin hvít, ilmandi í klösum í maí - júní. Stundum þroskast svört ber (steinaldin)í gisnum klösum að hausti. Gulir - rauðgulir haustlitir. Heggur þrífst í öllum sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Heggur sómir sér vel stakur eða fleiri saman í þyrpingum og röðum. Tilvalinn í sumarhúsalandið. Þolir vel hálfskugga. Lágmarks-millibil: 2 m. Þolir vel klippingu en blómgast þá minna. Heggurinn okkar er vaxinn upp af fræi sem safnað er hérlendis. Heimkynni: Norður og M-Evrópu, Norður og NA-Asía.

Heggur ‘Laila’ – Prunus padus ssp. borealis ‘Laila’

Harðgert, fremur lágvaxið tré. Hæð 5 - 8 m. Blómin hvít, ilmandi í uppréttum klösum fyrri part sumars. Stundum sjást svört steinaldin/ber á haustin. Gulir haustlitir. Þolir hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Heggur 'Laila' hentar stakstæður, í trjá- og runnaþyrpingar og í sumarhúsalóðina. Millibil: 2 - 3 m. 'Laila' er sænskt, blómsælt úrvalsyrki ættað frá Kukkola við Torne-ánna í N-Svíþjóð.

Hélubroddur ‘Jytte’ – Berberis candidula ‘Jytte’

All harðgerður, þéttur, sígrænn, hægvaxta, lágvaxinn skrautrunni (50 - 100 sm). Greinar mikið þyrnóttar. Laufið oddbaugótt, dökkgrænt og gljándi á efra borði. Laufið er aftur á móti "hvíthélað" að neðan. Gjarnan ber á roða í laufinu yfir vetrarmánuðina. Blómin gul, smágerð, drjúpandi og ilmandi fyrri part sumars. Aldinið svarblátt ber. Þolir hálfskugga. Þarf þokkalegt skjól. Þrífst í fullri sól og hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Hentar í blönduð beð með öðrum sígrænum gróðri og jafnvel í ker í góðu skjóli. Gæti hentað í lágvaxin limgerði í grónum görðum. Millibil um 80 sm en allt niður í 50 sm í limgerðum. Náttúruleg heimkynni hélubrodds eru í Kína. Mítursætt (Berberidaceae).

Hélurifs ‘Lukka’ – Ribes laxiflorum ‘Lukka’

Harðgerður, lágvaxinn (30 - 50 sm), jarðlægur runni. Laufið handflipótt. Laufgast í apríl. Rauðir haustlitir birtast strax í ágúst. Rauðbrún blóm í klasa í maí. Blá, héluð, , hærð, æt ber þroskast í lok júlí eða í ágúst. Má nýta í sultu og fleira. Hélurifs 'Lukka' þrífst í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Skuggþolið en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Hentar sem undirgróður undir trjám, í kanta, jaðra og þess háttar. Nóg er að planta 1 - 2 plöntum á fermetra. 'Lukka' er úrvalsyrki úr Lystigarði Akureyrar. Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).

Hélurifs ‘Rökkva’ – Ribes laxiflorum ‘Rökkva’

Harðgerður, mjög kröftugur, jarðlægur þekjandi runni. Blöðin eru stærri samaborið við lauf kirtilrifs (R. glandulosum). Laufgast í apríl. Rauðir, áberandi haustlitir sem birtast strax í ágúst. Rauð brum áberandi á veturna. Skuggþolið. Sérlega öflug þekjuplanta. Hentar vel sem þekjuplanta undir trjám og stærri runnum. Getur klifrað upp veggi, tré o.þ.h. Hentar einnig í raðir sem lágvaxið gerði. 'Rökkva' þroskar yfirleitt ekki ber. Blómin eru rauðbrún en ekki sérlega áberandi. Ein planta þekur 1 fermeter á fáum árum. Þrífst illa í þurrum og ófrjóum jarðvegi. 'Rökkva' er úrvalsyrki úr efnivið sem safnað var í Alaska í leiðangri Óla Vals Hanssonar og félaga árið 1985.

Héluvíðir – Salix helvetica

Lágvaxinn, harðgerður runni. Laufið ljós-grásilfrað. Litlir gulrauðir reklar birtast á vorin. Sólelskur annars nægjusamur. Hentar í kanta, ker og hleðslur. Stundum kallaður "ólívutré norðursins" vegna þess hve laufið líkist laufum ólívutrjáa (Olea europaea) þó að tegundirnar séu ekkert skyldar!

Hengibaunatré ‘Pendula’ – Caragana arborescens ‘Pendula’

Harðgert, ágrætt, sumargrænt, einstofna smátré. Hæð: 1,5 - 2,0 m yfirleitt en það fer eftir hæð ágræðslunnar. Laufið fínlegt, fjaðrað. Nánast hvítt þegar það springur út á vorin, síðar ljósgrænt. Gul baunablóm birtast miðsumars. Baunabelgir þroskast að hausti. Hengibaunatré er sólelskt. Lifir í sambýli við niturbindandi bakteríur. Gerir því litlar kröfur til jarðvegs. Hentar stakstætt, innan um lægri gróður, framan við hús og í ker/potta. Hengibaunatré er ágrætt efst á stofn af venjulegu baunatré sem vaxið er upp af fræi. Fjarlægið því rótarskot, stofnskot og sprota upp eftir stofninum að ágræðslunni um leið og þeir myndast annars munu þeir yfirtaka hangandi hlutann. Þarf uppbindingu alla vega fyrsta árið eftir gróðursetningu.

Hengibjörk / Vörtubirki – Betula pendula

All stórvaxið, sumargrænt tré. Sprotar vörtóttir og hárlausir. Laufblöðin nær tígullaga, tvísagtennt. Enginn sérstakur ilmur er af brumum né laufum eins og hjá ilmbjörk (B. pubescens) Smágreinar yfirleitt meira og minna slútandi. Börkur á eldri trjám áberandi hvítur með svörtum skellum við greinafestingar. Sólelsk. Þrífst best í sæmilega frjóum, vel framræstum, steinefna-ríkum jarðvegi. Hengibjörk hefur talsvert mikið verið reynd hérlendis enda með fegurstu trjám sem völ er á. Þrífst almennt illa. Kelur yfirleitt mikið og drepst að því er virðist upp úr þurru. Aftur á móti þrífst hengibjörk víða vel inn til landsins sérstaklega austur á Héraði og inn í Eyjafirði. Eigum til eitthvað af hengibjörk af finnskum uppruna. Heimkynni hengibjarkar eru í Evrópu og austur eftir Asíu. Þó ekki nyrst og syðst. Bjarkarætt (Betulaceae).

Hengigullregn ‘Pendula’ – Laburnum alpinum ‘Pendula’

Ágrætt, lágvaxið skrautré. Hæð um 2 m. Gulir blómklasar miðsumars. Greinum fjölgar með tímanum sem allar vaxa niður á við og niður á jörð. Gjarnan eru greinar snyrtar þegar þær eru komnar niður að jörð. Klippið einungis að sumri til. Ef greinar vaxa upp eða út frá stofni neðan við ágræðsluna sem er efst þarf að klippa þær í burt annars er hætt við að þær taki yfir og hengiútlitið hverfi. Eins og annað gullregn er hengigullregn eitrað sé þess neytt. Sólelskt. Gerir litlar kröfur til jarðvegs en hentar ekki í blautan jarðveg. Niturbindandi. Vissara er að binda upp hengigullregn eftir gróðursetningu. Eftir eitt til tvö ár má fjarlægja uppbindinguna. Annars er hengigullregn fremur harðgert en vissara er að velja því þokkalega skjólgóðan vaxtarstað. Hengigullregn fer vel stakstætt, innan um lægri gróður, framan við hús og í ker. Yrki þetta er upprunið í Englandi. Ertublómaætt (Fabaceae).

Hesli – Corylus avellana – kvæmi: frönsku Alparnir

Sumargrænn runni. Óvíst er hversu hávaxið hesli getur orðið hérlendis en nú þegar eru til um 2 m háir runnar á höfuðborgarsvæðinu og ef til vill víðar. Hesli blómgast snemma vors. Blómin minn á rekla birkis (Betula spp.) og elris (Alnus spp.) enda er hesli af bjarkætt (Betulaceae). Hesli er tvíkynja en vissara er að hafa fleiri runna saman til að tryggja frævun og síðan frjóvgun. Óvíst er hvort heslihnetur nái að þroskast hérlendis þó það sé ekki ósennilegt í góðu árferði á hlýjum stöðum. Hesli þrífst best í rakaheldnum og steinefnaríkum jarðvegi. Þolir hálfskugga.