Hrútaber / Hrútaberjaklungur – Rubus saxatilis
Harðgerð, lágvaxin, íslensk jurt. Hæð um 10 - 20 sm. Hrútaberjaklungur er skuggþolið. Lauf þrífingruð. Rauðir haustlitir. Blóm fimmdeild, hvít á lit. Berin (steinaldin) eru rauð í klösum og má nýta í sultur (hrútaberjahlaup) og fleira. Hrútaber fjölga sér kynlaust með löngum renglum sem mynda smáplöntur sem skjóta rótum. Þrífst í allri sæmilega frjórri, vel framræstri mold. Prýðis þekjuplanta t.d. undir trjám og runnum. Hentar einnig í brekkur og skriður. Í skugga þroskast minna eða ekkert af berjum.
Hunangstoppur ‘Little Honey’ – Lonicera crassifolia ‘Little Honey’
Jarðlægur, sígrænn, hægvaxta dvergrunni. Blöðin smá, kringlótt og gljáandi. Dökkgræn en gjarnan vínrauð á veturna. Blómin gul, nokkur saman í krans miðsumars. Aldinið svart ber. Sólelskur en þolir hálfskugga. Nýlegur í ræktun og reynsla því takmörkuð. Hentar í hleðslur, kanta og ker í vel framræstum jarðvegi. Heimkynni: Kína.
Hurdalsrós – Rosa ‘Hurdalsrose’
Meðalstór til stórvaxinn runni, 1,5 - 2,5 m á hæð. All harðgerð. Blómin fagurbleik, meðalstór, hálffyllt. Ilma lítið sem ekkert. Rauðgular, þyrnóttar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Fer vel stakstæð, í blönduð beð og upp við vegg, jafnvel á grind sem klifurrós. Skríður ekki út með rótarskotum. Getur sýkst af ryðsvepp.
Hvítgreni – Picea glauca – Nýfundnaland
All hávaxið, sígrænt, keilulaga tré. Barrið grágrænt - blágrænt. Fínlegra og ekki eins stingandi samanborið við sitkageni (Picea sitchensis). Hægvaxnara og mjóslegnara samanborið við sitkagreni. Hentar frekar inn til landsins en við sjávarsíðuna. Lyktar. Hvítgreni og sitkagreni mynda gjarnan kynblendinga sem kallast sitkabastarður eða hvítsitkagreni (Picea x lutzii). Blendingur þessi er algengur hérlendis. Hvítgrenið okkar er af fræi frá Nýfundnalandi.
Ígulrós ‘Fönn’ – Rosa rugosa ‘Fönn’
Harðgerð, lágvaxin - meðalstór runnarós (1 - 1,5 m). Blómin stór, hálffyllt, snjóhvít og ilmandi. Fölbleik í knúpp. Rauðgular nýpur. Rauðgulir haustlitir. Aðeins skriðul. Sólelsk en þolir hálfskugga.. Vind- og saltþolin. 'Fönn' hentar í blönduð runnabeð, þyrpingar og raðir með 70 - 80 sm millibili. Einnig kjörin í sumarhúsalandið enda nægjusöm. Íslenskt yrki frá Jóhanni Pálssyni. Foreldar eru: R. rugosa ‘Logafold’ x R. rugosa ‘Schnee Eule’.
Ígulrós ‘Fru Dagmar Hastrup’ – Rosa rugosa ‘Fru Dagmar Hastrup’
Harðgerð, meðalstór runnarós (1 -1,5 m). Blómin stór, einföld, ljósbleik og ilmandi. Sólelsk. Vind- og saltþolin. Stórar rauðar nýpur. Aðeins skriðul. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi. Má gjarnan vera sand- og malarborinn. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 - 100 sm millibili. Danskt yrki. Eitt besta yrkið til framleiðslu á nýpum. Nýpur má nýta í sultur, grauta og te. Þær eru mjög C-vítamínríkar.
Ígulrós ‘Hadda’ – Rosa rugosa ‘Hadda’
Harðgerð runnarós. Vaxtarlagið útbreitt. Hefur því þekjandi eiginleika. Hæð: 1 - 1,5 m. Blómin stór, hálffyllt, rauðfjólublá og ilmandi. Er með fyrstu ígulrósum að byrja að blómstra á sumrin. Blómgast fram á haust. Rauðar, flathnöttóttar nýpur þroskast að hausti. Blaðstönglar og axlarblöð rauðleit. Gulbrúnir haustlitir. Sólelsk. Þrífst best í aðeins sendnum/grýttum og vel framræstum jarðvegi. Blandið lífrænu efni (búfjáráburði/moltu) saman við jarðveginn við gróðursetningu. 'Hadda' hentar í breiðuplantanir til að þekja yfirborð og sem jaðarplanta í trjábeðum. Einnig í blönduð runnabeð, brekkur og þess háttar. Rótarkerfið skríður lítið sem ekkert út. 'Hadda' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar (1931 - 2023) og er blendingur R. rugosa 'Rotes Meer' x R. kamtschatica. Kennd við eiginkonu Jóhanns, Hrafnhildi Kristínu Jónsdóttur (1935 - 2023) sem gjarnan var kölluð Hadda.
Ígulrós ‘Jóhanna’ – Rosa rugosa ‘Jóhanna’
Mjög harðgerð, fremur hraðvaxta, all stórvaxin runnarós. Hæð um 2 m. Greinar brúnar, talsvert þyrnóttar og gjarnan útsveigðar í endann á kröftugum sprotum. Laufin stakfjöðruð. Gulir haustlitir. Blómin einföld, all stór, rauðfjólublá og ilmandi með gulum fræflum. Blómgast í júlí - september. Rauðar, flathnöttóttar nýpur þroskast á haustin sem nýta má til manneldis. Vind- og saltþolin. Skríður út með rótarskotum.
Þrífst og blómstrar mest á sólríkum stað í sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. 'Jóhanna' hentar í raðir og þyrpingar með um 1 m millibili. Hentar í brekkur, umferðareyjar, opin svæði, í jaðar skjólbelta og villigarða. Hentar eingöngu saman með öðrum gróðri sem þolir vel samkeppni eins og t.d. aðrar skriðular rósir og saman með skriðulum kvistum og hávöxnum fjölæringum. 'Jóhanna' mun vera kennd við Jóhann Pálsson grasafræðing og rósakynbótamann. Rósaætt (Rosaceae).
Ígulrós ‘Krístin’ – Rosa rugosa ‘Kristín’
Harðgerð, fremur lágvaxinn (1,5) runnarós. Blómin tvöfölld, rauðbleik, fremur stór, ilmandi og gjarnan nokkur saman í klasa. Rauðar nýpur þroskast að hausti. Rauðgulir - gulir haustlitir. Sólelsk. Skríður nokkuð út með rótarskotum. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir, þyrpingar, brekkur og villigarða. Millibil: 80 - 100 sm. 'Kristín' er ein af rósum Jóhanns Pálssonar. Hún mun vera afkomandi R. rugosa 'Logafold' og (R. kamtschatica x ?).
Ígulrós ‘Logafold’ – Rosa rugosa ‘Logafold’
Rósin 'Logafold' er afrakstur rósakynbóta Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar. 'Logafold' er harðgerð og þétt runnarós. Vind- og saltþolin enda af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin eru stór, léttfyllt, fallega skálformuð, rauðfjólublá - bleik og ilmandi. Langur blómgunartími. Rauðar nýpur. Sólelsk en þolir hálfskugga. Hæð um 1,5 m. Framleidd og seld í Þöll á eigin rót. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Getur einnig vaxið "villt" í sumarhúsalöndum og þess háttar. 'Logafold' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar grasafræðings. Hún er afkomandi R. 'Charles Albanel x ?.
Ígulrós / skráprós – Rosa rugosa
Harðgerður, lágvaxinn - meðalhár (1 - 1,5 m), heilbrigður, sumargrænn runni. Laufin eru stakfjöðruð, smáblöðin oftast sjö talsins, 8 - 15 sm löng. Smáblöðin sporöskjulaga, 3 - 4 sm á lengd og tennt. Gulir haustlitir. Greinar og blaðstilkar þyrnótt. Blómin stór, einföld, yfirleitt rauðfjólublá, ilmandi, venjulega samsett úr fimm krónublöðum. Byrjar að blómgast í júlí og blómstrar gjarnan fram á haust. Stórar rauðar, flathnöttóttar nýpur þroskast á haustin. Nýpurnar sitja gjarnan á greinunum fram á vetur sé þeim ekki safnað eða étnar af fuglum.
Sólelsk. Vind- og saltþolin. Þrífst vel í sendnum og malarbornum jarðvegi. Blandið moltu eða gömlu taði við jarðveginn við gróðursetningu. Hentar ekki á blauta staði. Skríður talsvert út með rótarskotum. Tilvalin til að binda jarðveg t.d. í brekkum, röskuðum svæðum og þess háttar. Hentar í runnaraðir/limgerði á vindasömum stöðum við sjávarsíðuna. Millibil 50 sm en meira ef rósin fær að vaxa óklippt. Ef hún er klippt mikið blómstrar hún minna en ella. Ígulrós hentar til framleiðslu á nýpum sem nota má í te, sultu, grauta og fleira. Einnig nefnd "garðarós", "skráprós", "nýpurós og "hansarós". Hansarós (R. rugosa 'Hansa') er vinsælt yrki af ígulrós með þéttfylltum, rauðfjólubláum blómum sem sjaldan þroskar nýpur. Fjallað er sérstaklega um hansarós hér á síðunni.
Ígulrósirnar okkar eru vaxnar upp af fræi sem tínt hefur verið hérlendis. Við framleiðum og seljum nokkur yrki af ígulrós/ígulrósablendingum sem eru með hálffylltum og fylltum blómum eins og 'Fönn', 'Hansa', Logafold', 'Ritausma' og fleiri sem fjallað er um sérstaklega hér á grodrarstod.is.
Ígulrós vex aðallega með ströndum fram þar sem hún vex villt. Upprunanleg heimkynni ígulrósar eru í A-Asíu nánar tiltekið í NA-Kína, Japan, Kóreu og SA-Síberíu. Í dag vex ígulrós víða villt í Evrópu, N-Ameríku og S-Ameríku og er þar sums staðar talin ágeng. Hefur ekki sáð sér út hérlendis svo vitað sé. Þó hafa plöntur fundist utan garða hérlendis t.d. í Vík í Mýrdal. Það gætu allt eins verið gróðursettar plöntur eða vaxið upp þar sem garðaúrgangur hefur verið losaður. Rósaætt (Rosaceae).