Reklavíðir ‘Wehrhahnii’ – Salix hastata ‘Wehrhahnii’
All harðgerður, lágvaxinn runni. Hæð: 50 - 70 sm. Áberandi axlarblöð. Sprotar rauðbrúnir. Mjög blómsælt, karlkyns yrki. Reklar fara að gægjast fram í apríl talsvert áður en runninn laufgast. Reklarnir eru hvítloðnir. Gulir frjóhnappar birtast í maí. Blómstrar svo aftur í júní eftir laufgun og jafnvel aftur í júlí! Sólelskur. Stundum ber á kali og asparglittu. Fer best í hleðslum, steinhæðum, beðjöðrum, kerjum og þess háttar. Fremur sjaldgæfur hérlendis. Yrkið 'Wehrhahnii' er fundið í Sviss í kringum árið 1930. Tegundin S. hastata kallast sólvíðir en nafnið reklavíðir á aðeins við um yrkið 'Wehrhahnii'. Heimkynni sólvíðis eru víða á norðurhveli aðallega í fjalllendi í N-Ameríku og Evrasíu.
Renglurós ‘Dart’s Defender’ – Rosa x rugotida ‘Dart’s Defender’
Harðgerð, sumargræn runnarós. Hæð: 70 - 100 cm. Laufið stakfjaðrað, áberandi gljáandi og um 10 cm á lengd. Laufið situr stakstætt á greinunum. Rauðgulir haustlitir. Þéttþyrnótt. Blómin meðalstór, rauðfjólublá - lillableik, hálffyllt og ilmandi. Blómin eru yfirleitt nokkur saman í klasa. Blómstrar frá miðju sumri og fram á haust. Þroskar gjarnan rauðar nýpur á haustin. Heilbrigð rós.
Sólelsk. Þrífst best í sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. Hentar í raðir og þyrpingar og í bland með öðrum runnum. Millibil um 1 m. Skríður eitthvað út með rótarskotum. 'Dart's Defender' er all vind- og saltþolinn og hentar því við sjávarsíðuna og á opnum svæðum.
'Dart's Defender' er tegundablendingur hansarósar/ígulrósar (R. rugosa 'Hansa') og brúðurósar (R. nidita). Hollenskt yrki frá árinu 1971. Rósaætt (Rosaceae).
Reyniblaðka ‘Pia’- Sorbaria sorbifolia ‘Pia’
Harðgerður meðalhár - hávaxinn runni (2 - 2,5 m). Blöðin minna á lauf reyniviðar (Sorbus aucuparia). Laufgast áberandi snemma eða gjarnan í apríl. Verður því stundum fyrir einhverju vorkali. Gulir haustlitir eða frýs græn. Stórir, hvítir, keilulaga blómklasar birtast síðsumars (ágúst). Fremur skuggþolin. Hraðvaxta. Reyniblaðka 'Pia' skríður eitthvað út með rótarskotum. Þrífst best í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Tilvalin undir stórum trjám, í skuggsæl horn, í raðir, þyrpingar og limgerði. Einnig á umferðaeyjar og við bílastæði þar sem hún þolir vel að brotna t.d. vegna snjóruðnings. Millibil um 1 m. Ögn þéttar sé hún gróðursett í limgerði. Það er tilvalið að klippa reyniblöðku niður á nokkurra ára fresti eða grisja hana vel. 'Pia' er norskt úrvalsyrki frá Vadsø í N-Noregi. Sögð skríða minna út en reyniblaðka almennt. Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru í Asíu það er tempraða hluta Síberíu, N-Kína, Japan og Kóreu.
Reyniblaðka ‘Sem’ – Sorbaria sorbifolia ‘Sem’
Sæmilega harðgerður skrautrunni. Laufið stakfjaðrað, gulgrænt. Yngsta laufið bleikleitt/bronslitað. Laufgast snemma vors. Kelur stundum. Hæð: 1 - 1,5. Lágvaxnari en reyniblaðka 'Pia'. Lítið skriðul. Þolir vel hálfskugga en litirnir verða sterkastir í góðri birtu. Hvítir uppréttir blómklasar birtast síðsumars (ágúst). Þrífst vel í allri venjulegri garðmold. Millibil um 70 - 100 sm. Reyniblaðka 'Sem' hentar í blönduð runna- og blómabeð, ker og þess háttar. Hollenskt yrki.
Reynir – Sorbus – fræplöntur af ‘Joseph Rock’
All harðgert lítið - meðalstórt tré. Lauf stakfjöðruð. Rauðir haustlitir í október. Hvítir blómsveipir í júní. Gul - rauðgul ber í klösum á haustin. Þolir hálfskugga. Reynir sómir sér vel stakstæður. Í röðum og þyrpingum hafið þá að minnsta kosti 2 m á milli plantna. Þar sem reynir 'Joseph Rock' er ekki fræekta er nokkur breytileiki á milli einstaklinga.
Reyniviður / Ilmreynir / Reynir – Sorbus aucuparia
Harðgert, íslenskt, lágvaxið - meðalhátt tré (5 - 12 m). Stundum runni. Ýmist ein- eða margstofna. Börkur sléttur. Brumin hærð. Laufið stakfjaðrað. Pör smáblaða 4 - 9 talsins. Smáblöðin eru lensulaga, tennt og hærð í fyrstu. Gulir - rauðir haustlitir í september og fram í október. Laufgast í maí. Blómin hvít, ilmandi í sveipum fyrri part sumars. Reyniberin sem þroskast að hausti eru rauð / rauðgul í stórum klösum. Berin þroskast í lok ágúst eða byrjun september. Þau eru yfirleitt étin upp af fuglum í október. Vex víða villtur í íslenskri náttúru. Mjög algengt og vinsælt garðtré. Fer vel stakstæður eða fleiri saman í röðum eða þyrpingum. Lágmarks-millibil á milli trjáa 3 m. Mjög breytileg tegund. Talsvert skuggþolinn sérstaklega í æsku. Reyniáta getur verið vandamál. Klippið og snyrtið reyni á sumrin til að forðast smit af reyniátu. Þrífst í öllum sæmileg frjóum, framræstum jarðvegi. Sáir sér víða út, sérstaklega í kjarr- og skóglendi, í hraunum og giljum. Vinsæl beitarplanta og hverfur yfirleitt þar sem er sauðfjárbeit. Sama á við um svæði þar sem eru kanínur. Forðist að gras vaxi upp að ungum plöntum. Heimkynni: Stór hluti Evrópu og þar með talið Ísland og N-Asía. Lang útbreiddasta reynitegundin í heiminum. Rósaætt (Rosaceae).
Rifs ‘Jonkheer van Tets’ – Ribes rubrum ‘Jonkheer van Tets’
Harðgerður berjarunni. Hæð: 1,0 - 1,5 m. Millibil: 80 - 100 sm. Uppskerumikið yrki. Ber þroskast í ágúst - byrjun september. Ber fremur sæt. Vinsæl í hlaup og þess háttar. Þolir vel hálfskugga en uppskerumest í fullri sól. Þrífst best í frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Venjulega plantað í raðir ásamt öðrum berjarunnum eða eitt og sér. Hollenskt yrki.
Rifs ‘Rautt Hollenskt’ – Ribes rubrum ‘Rautt Hollenskt’
Mjög harðgerður, meðalhár runni (1,5 m eða meir). Laufið handsepótt á löngum blaðstilk. Berin rauð, í klösum, súrsæt og æt. Berin Þroskast yfirleitt seinni part ágúst. Rifs 'Rautt Hollenskt' er aðallega ræktað vegna berjanna. Hæfilegt bil á milli rifsrunna er um 1 m. 'Rautt Hollenskt' er algengasta "rauð-rifsið" hérlendis og hefur verið lengi. Rifslús og rifsþéla eru gjarnan til ama. Rifs 'Rautt Hollenskt' er all vind- og saltþolið. Þrífst best í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Þolir vel hálfskugga en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Venjulega gróðursett í raðir t.d. utan um matjurtagarða og þess háttar. Berin eru notuð í sultur, saft, hlaup og fleira. Mjög gamalt yrki.
Risalífviður – Thuja plicata
Sígrænt, keilulaga, í meðallagi hraðvaxta tré. Óvíst er hversu hár risalífviður getur orðið hérlendis. Hefur þó náð afmarkað 12 m hæð við Jökullæk í Hallormsstaðaskógi. Barrið er hreisturkennt og ilmandi. Grænt að ofan en ljósara að neðanverðu. Ilmurinn minnir á ananas. Börkur rauðbrúnn. Þarf gott skjól í uppvextinum. Þolir talsverðan skugga. Könglarnir eru litlir og aflangir en ekki kringlóttir eins og á sýprus (Chamaecyparis spp. og Cupressus spp.). Risalífviður getur í heimkynnum sínum orðið mjög stórvaxinn og langlífur.
Risalífviður þrífst helst í skógarskjóli eða í grónum görðum í frjóum, rakaheldnum en framræstum jarðvegi. Barrið verður gjarnan brúnleitara á vetrum en grænkar svo aftur ef plantan er óskemmd. Skýlið alla vega fyrsta veturinn eftir gróðursetningu nema að skjólið sé þeim mun meira. Þolir vel klippingu og er m.a. notaður í klippt limgerði erlendis. Risalífviðirnir okkar eru afkomendur trjánna við Jökullæk. Þau tré eru af kvæminu, Kamloops, Bresku Kólumbíu, Kanada. Þykir gott timburtré en viður risalífviðar hefur náttúrulega fúavörn og er ilmandi. Heimkynni: Norðvestanverð N-Ameríka. Grátviðarætt (Cupressaceae).
Risamjaðjurt – Filipendula camtschatica
Harðgerð, stórvaxin jurt. Hæð 2 m eða meir á skjólgóðum stöðum. Stönglar uppréttir, þykkir og sterkir svo yfirleitt þarf risamjaðjurt ekki uppbindingu. Laufblöðin eru stór, handflipótt og tvísagtennt. Gulir haustlitir. Blómgast í ágúst á stöngulendana. Blómin eru smá, hvít, ilmandi, mörg saman í stórum blómskúfum. Verða bleik- eða bronslituð þegar líður að hausti.
Risamjaðjurt þrífst best í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Þolir vel hálfskugga. Hentar stakstæð eða fleiri saman. Millibil við gróðursetningu 1 - 1,5 m. Jurtin breiðist smám saman út til hliðana. Fer vel aftast í blönduðum beðum. Hentar einnig við læki og tjarnir enda þolir hún vel rakan jarðveg. Heimkynni: Sakhalín, Kúrileyjar og Kamsjatka í Rússlandi auk Japan og Kóreu. Rósaætt (Rosaceae).
Rjúpuvíðir ‘Þórhalla’ – Salix glauca ‘Þórhalla’
Mjög harðgerður, meðalstór runni. Hæð um 1 - 1,3 m. Lauf og sprotar gráloðin. Gulir haustlitir. Sólelskur. Vind- og saltþolinn. Minnir á loðvíði (S. lanata) en laufið á rjúpuvíði er að jafnaði smærra. Engin axlarblöð eru á rjúpuvíði eins og eru á loðvíði. Rjúpuvíðir 'Þórhalla' sómir sér vel í blönduðum beðum með öðrum gróðri en einnig í röðum og þyrpingum. Millibil um 80 sm. Þolir vel klippingu. Yrkið er kennt við Þórhall Jónsson kaupmann en hann var m.a. mikilvirkur í Dalíuklúbbnum. Rjúpuvíðir 'Þórhalla' mun upphaflega hafa komið hingað til lands frá Grænlandi en þar vex rjúpuvíðir villtur. Auk Grænlands er rjúpuvíðir villtur víða í N-Ameríku, N-Evrópu og í N-Asíu. Mjög breytileg tegund.
Roðakirsi – Prunus pensylvanicum
All harðgert, lágvaxið, einstofna eða margstofna tré eða runni. Hæð 3 - 7 m hérlendis. Blómin hvít í sveip. Aldinið rautt, lítið steinaldin/kirsiber, ætt. Rauðgulir - rauðir haustlitir. Börkur fallega gulbrúnn. Roðakirsi þrífst best á sólríkum stað í frjóum, vel framræstum jarðvegi. Hentar stakstætt eða fleiri saman í þyrpingum með 2,5 millibili hið minnsta. Fremur sjaldgæft hérlendis.