Koparreynir – Sorbus frutescens

Harðgerður meðalhár - hávaxinn runni (2 - 3 m). Brum nær svört. Greinar útsveigðar með tímanum og dálítið drjúpandi. Blöðin dökkgræn, mött, fínleg, stakfjöðruð og allt að 18 sm löng. Smáblaðapör venjulega 11 - 12 talsins. Smáblöð 15 - 24 mm löng alla jafna, tennt, egglaga - lensulaga. Rauðir haustlitir í september. Smáir, hvítir blómsveipir snemmsumars. Hvít - fölbleik ber í stórum klösum þroskast á haustin. Mikið af berjum þroskast á hverju hausti einnig þó sumarið sé slakt!. Koparreynir er "apomictic" smátegund og er því einsleitur upp af fræi. Koparreynir þrífst í allri venjulegri garðmold sem ekki er of blaut. Koparreynir er glæsilegur stakstæður. Einnig fallegur í röðum og þyrpingum með 1 - 1,5 m millibili. Koparreyni má einnig gróðursetja í limgerði sem eru ýmist klippt eða meira og minna óklippt. Hæfilegt millibil er 50 - 60 sm í limgerði. Koparreynir er fallegastar í fullri sól en þolir vel hálfskugga. Klippið á sumrin en ekki að hausti eða vetri til að forðast reyniátu (Cytospora rubescens). Koparreynir er vinsæll og algengur í íslenskum görðum. Heimkynni: Kína. Líklega frá NV-Gansu. Rósaætt (Rosaceae).

Lækjavíðir ‘Blika’ – Salix arbusculoides ‘Blika’

Harðgerður, fremur hraðvaxta, hávaxinn runni eða margstofna tré. Hæð 3 - 6 m. Sprotar grannir, dökkrauðbrúnir og gljáandi. Laufblöð lensulaga - mjósporbaugótt, ydd í báða enda og gljándi á efra borði. Ljósari og gjarnan aðeins hærð að neðan. Laufin eru allt að 7,5 sm löng og kirtiltennt. Er með axlarblöð sem falla fljótt. Haustlitur gulur. Sólelskur. Þolir vel klippingu. Laus við asparglyttu og ryð. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi sem má gjarnan vera sand- og malarborinn. Lækjavíðir 'Blika' hentar vel í klippt limgerði. Einnig fer hann vel í þyrpingar og við læki og tjarnir. 2 - 3 stk/m henta í limgerði. Meira bil þarf að gefa þegar lækjavíðir er gróðursettur í þyrpingar eða stakur eða um 1,5 m. Lækjavíðir 'Blika' hentar ekki á mjög vindasama staði t.d. úti við ströndina. Þá henta jörfavíðir (S. hookeriana) og alaskavíðir (S. alaxensis) betur. 'Blika' er úrvalsyrki valin úr efniviði úr Alaskaferð Óla Vals og félaga árið 1985. Henni var safnað nálægt Port Alsworth við Clark stöðuvatnið sunnarlega í vesturhluta Alaska. Heimkynni lækjarvíðis eru annars auk Alaska, stærstur hluti Kanada. Lækjavíðir vex aðallega inn til landsins meðfram ám og lækjum. Víðisætt (Salicaceae).

Lensuvíðir ‘Ljómi’ – Salix lasiandra ‘Ljómi’

All harðgerður stórvaxinn runni eða lítið tré (3 - 6 m). Árssprotar rauðbrúnir og gljáandi. Laufið lensulaga - egglaga, bogtennt og langydd. Meira og minna hárlaus. áberandi glansandi. Gulir haustlitir. Reklarnir birtast á sama tíma og laufgun á sér stað í maí. Þeir eru smáir og ekki sérstaklega áberandi. Minnir í útliti nokkuð á bambus. Lensuvíðir þrífst í öllum sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Í meðallagi hraðvaxta. sólelskur. Hentar stakstæður, í raðir, þyrpingar, í bland með öðrum gróðri og í klippt limgerði. Fremur hraðvaxta. Getur orðið fyrir kali við erfiðar aðstæður. Stundum ber aðeins á skemmdum af völdum asparglyttu en þær eru yfirleitt ekki miklar. Annars heilbrigður. Karlkyns yrki valið úr efnivið úr Alaska-leiðangi Óla Vals Hanssonar og félaga árið 1985. Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka. Víðisætt (Salicaceae).

Loðvíðir ‘Laugabrekka’ – Salix lanata ‘Laugabrekka’

Mjög harðgerður, íslenskur runni. Upprétt yrki. Hæð: 1 - 2 m. Laufið grágrænt og loðið. Kvenkyns yrki. Sólelskur. Loðvíðir 'Laugabrekka' laufgast ekki fyrr en um miðjan júní. En fyrir vikið sækja pöddur ekki í þetta yrki ólíkt öðrum loðvíði. Þrífst í alls konar jarðvegi. Vind- og saltþolinn. Hefur lengi verið framleiddur í Þöll og reynst vel. Hentar í raðir, þyrpingar, lágvaxin limgerði, brekkur, opin svæði og sumarhúsalóðir. Millibil 50 - 80 sm. Einnig nefndur grávíðir.

Mánakvistur – Spiraea ‘Máni’

Harðgerður, þéttur, meðalhár, all hraðvaxta runni. Hæð 1,5 - 2,0 m. Álíka breiður með tímanum. Greinar fyrst uppréttar en síðan útsveigðar. Laufblöð oftast í kringum 1,5 sm á lengd, mött, grágræn á neðra borði og hárlaus. Blaðgrunnur odddreginn. Breiðsporbaugótt - öfugegglaga. og yfirleitt bogtennt á efsta þriðja hluta blöðkunnar. Blómin smá, hvít, mörg saman í hálfsveipum sem eru allt að 3 sm í þvermál. Blómgast í júlí og fram í ágúst. Blómsæll. Rauðgulir haustlitir. Þolir vel hálfskugga. Þolir vel klippingu. Minnir talsvert á sunnukvist (S. nipponica) í útliti en greinabygging er fíngerðari. Mánakvistur sómir sér vel í blönduðum runna- og blómabeðum og í röðum/limgerðum og þyrpingum. Millibil um 80 - 100 sm. Mánakvistur er all algengur á opnum svæðum í Rvk og í görðum á höfuðborgarsvæðinu og sjálfsagt víðar. Mánakvisturinn sem hér er í ræktun kom frá Grasagarðinum í Rvk. Hann óx upp af fræi frá háskólagrasagarðinum í Rostock í Þýskalandi á áttunda áratug síðustu aldar. Fræið kom undir heitinu Spiraea uratensis. Mánakvisturinn virðist ekki vera ekta S. uratensis og er hann því skráður sem Spiraea 'Máni' enda líklega um blendingstegund að ræða. Rósaætt (Rosaceae).

Reyniblaðka ‘Pia’- Sorbaria sorbifolia ‘Pia’

Harðgerður meðalhár - hávaxinn runni (2 - 2,5 m). Blöðin minna á lauf reyniviðar (Sorbus aucuparia). Laufgast áberandi snemma eða gjarnan í apríl. Verður því stundum fyrir einhverju vorkali. Gulir haustlitir eða frýs græn. Stórir, hvítir, keilulaga blómklasar birtast síðsumars (ágúst). Fremur skuggþolin. Hraðvaxta. Reyniblaðka 'Pia' skríður eitthvað út með rótarskotum. Þrífst best í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Tilvalin undir stórum trjám, í skuggsæl horn, í raðir, þyrpingar og limgerði. Einnig á umferðaeyjar og við bílastæði þar sem hún þolir vel að brotna t.d. vegna snjóruðnings. Millibil um 1 m. Ögn þéttar sé hún gróðursett í limgerði. Það er tilvalið að klippa reyniblöðku niður á nokkurra ára fresti eða grisja hana vel. 'Pia' er norskt úrvalsyrki frá Vadsø í N-Noregi. Sögð skríða minna út en reyniblaðka almennt. Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru í Asíu það er tempraða hluta Síberíu, N-Kína, Japan og Kóreu.

Runnamura ‘Stella’ – Dasiphora fruticosa ‘Stella’

Harðgerður, þéttur, fíngreinóttur runni. Hæð: 1 - 1,5 m. Laufblöð fremur smá, græn - blágræn, hærð, stakfjöðruð eða fingruð. Blómin gul 2 - 3 sm í þvermál með fimm krónublöðum. Blómin eru ljósari og ögn smærri en á runnumuru 'Goldfinger' en dekkri samanborið við runnamuru 'Månelys'. Sólelsk en þolir hálfskugga. 'Stella' er íslenskt úrval. Blómgast í júlí og fram í september. Stundum byrjar hún jafnvel í lok júní. Byrjar fyrr að blómgast á sumrin samanborið við 'Goldfinger'. Runnamura 'Stella' þrífst vel í öllum venjulegum, sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Hentar í lág limgerði, þyrpingar, ker og potta. Millibil um 70 - 80 sm. Runnamura er breytileg tegund sem vex villt á kald-tempruðum svæðum á norðurhveli jarðar. Í náttúrunni vex hún gjarnan í deiglendi og grýttum svæðum.

Sitkagreni – Picea sitchensis

Mjög harðgert, stórvaxið, langlíft, sígrænt barrtré. Krónan breiðkeilulaga. Greinar yfirleitt uppréttar. Sprotar ljósgulbrúnir eða nánast hvítir og hárlausir. Nálar flatar í þversniðinu, 1,5 - 2,5 cm á lengd. 2 - 3 loftaugarendur eru að ofanverðu á nálunum og tvær miklu meira áberandi að neðanverðu sem gera það að verkum að nálar eru dökkgrænar að ofanverðu en ljós-bláleitar að neðanverðu. Því eru stór sitkagreni sem maður horfir uppundir blágrá eða jafnvel silfurlit að sjá. Nálar eru mjög stingandi. Könglar sívalir, drjúpandi á greinunum, 6 - 10 cm á lengd og 2 - 3 cm á breidd. Köngulhreistrið þunnt og sveigjanlegt. Hreisturblaðkan stundum sjáanleg á lokuðum könglum. Könglar í fyrstu rauðleitir og síðan ljósbrúnir fullþroska. Það tekur köngla 5 - 7 mánuði að þroskast frá frjóvgun sem á sér stað á vorin. Sitkagreni þroskar köngla á nokkurra ára fresti eftir að 30 - 40 ára aldri er náð. Sum tré mynda þó köngla fyrr á æviskeiðinu t.d. eftir áföll eins og flutning. Börkur er fremur þunnur og er því sitkagreni ekki eldþolið tré. Viðurinn er léttur og hlutfallslega sterkur. Hann er m.a. notaður í hljóðfæri, flugvélar og báta. Útsprungin brum má nota í greni-bjór og sýróp. Forðist að planta í frostpolla. Sumt af því sem kallað er sitkagreni kann að vera sitkabastarður / hvítsitkagreni (Picea x lutzii). Sitkagreni/sitkabastarður er lang algengasta grenið hérlendis. Hraðvaxta. Vind- og saltþolið. Þolir vel klippingu. Þolir hálfskugga. Þrífst best í brekkum þar sem er að finna ferskan jarðraka og jarðvegur er nokkuð frjór. Glæsilegt stakstætt, fer vel í röðum og þyrpingum. Einnig kjörið í skjólbelti og jafnvel klippt limgerði. Þó eru ekki öll sveitarfélög sem leyfa gróðursetningu sitkagrenis á lóðarmörkum (sjá byggingareglugerð) enda verður sitkagreni mjög stórvaxið með tímanum.  Eitt mest notaða tré í skógrækt hérlendis enda harðgert og gott timburtré. Stundum nýtt sem jólatré/torgtré enda ágætlega barrheldið. Lang besta sígræna tréið til ræktunar við sjávarsíðuna eins og t.d. á Reykjanesi. Sáir sér út þar sem aðstæður leyfa. Sitkagreni gerir kröfur um frjósemi jarðvegs svo setjið vel af moltu eða búfjáráburði við gróðursetningu. Þegar skógarplöntur eru gróðursettar skal setja nokkur korn af tilbúnum áburði með. Sitkagreni er ein hávaxnasta trjátegnd í heiminum. Óvíst er hversu hávaxið það getur orðið hér á landi. Hæstu tré hérlendis eru sitkagreni á Kirkjubæjarklaustri, um 30 m á hæð (2022). Millibil við gróðursetningu að lágmarki 3 m. Stundum 2 m í skógrækt. Til frambúðar að lágmarki 4 - 5 m. Við framleiðum eingöngu sitkagreni af íslensku fræi. Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka frá Alaska í norðri suður til Kaliforníu. Vex yfirleitt ekki langt frá ströndinni í heimkynnum sínum. Íslenski stofninn er nær allur ættaður frá Alaska. Kennt við bæinn Sitka sem er á eyjunum Baranof og Chichagof sem eru hluti af Alexander-eyjaklasanum í SA-Alaska, Bandaríkjunum. Þallarætt (Pinaceae).

Sitkavíðir ‘Óli’/ „Ólavíðir“ – Salix sitchensis ‘Óli’

Harðgerður stórvaxinn runni/lágvaxið tré. Brum útstæð. Laufið öfugegglaga - öfuglensulaga, 7 - 10 cm á lengd. Nánast heilrennd. Blaðjaðrar verpast aðeins niður á við. Laufin breiðust framan við miðju. Gljáandi á efra borði en silfurhærð á neðra borði (sjá mynd). Er með fremur smá axlarblöð. Gulir haustlitir í október. Minnir á viðju (Salix myrsinifolia) í útliti en heilbrigðari og almennt laus við asparglyttu og ryðsvepp. Sitkavíðir 'Óli' er vindþolinn og sólelskur. Líklega sæmilega saltþolinn en meiri reynslu vantar hvað það varðar. Þrífst vel í öllum sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Sitkavíðir hentar í limgerði og skjólbelti 2 - 3 plöntur/m. Þolir mjög vel klippingu jafnt að vetri sem sumri. Yrkið er kennt við Óla Val Hansson (1922 - 2015) garðyrkjuráðanaut en hann kom með þennan víði til landsins úr Alaska leiðangri sínum árið 1953. Heimkynni sitkavíðis eru vestanverð N-Ameríka frá Alaska suður til N-Kaliforníu. Útbreiðslan nær austur til Montana fylkis. Víðisætt (Salicaceae).

Sitkavíðir ‘Þruma’ – Salix sitchensis ‘Þruma’

Harðgerður, sumargrænn runni. Hæð 3 - 5 m. Greinar grábrúnar. Árssprotar frekar grannir, rauðbrúnir. Efri hluti þeirra er hærður. Brum rauðbrún, útstæð. Laufblöðin eru mjóöfugegglaga - öfuglenslulaga, meira og minna heilrend og gráleit. Gishært að ofan og silkihært á neðra borði. Nýtt lauf gjarnan rauðbrúnleitt. Gulur haustlitur. Sitkavíðir 'Þruma' er vindþolin. Sólelsk. Hún er laus við asparglyttu sem er mikill kostur. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi sem gjarnan má vera sendinn og malarborinn. Blandið moltu eða hrossataði saman við jarðveginn við gróðursetningu. Sitkavíðir 'Þruma' hentar í klippt limgerði og skjólbelti. Hæfilegt er að setja 2 - 3 plöntur/m. Klippið 'Þrumu' alla vega einu sinni á ári. Heppilegur tími til klippingar er seinni part vetrar. 'Þruma' er úrvalsyrki úr efniviðnum sem barst hingað úr Alaskaferð Óla Vals og félaga haustið 1985.  Nánar tiltekið er 'Þruma' ættuð frá grifjum/námum við Kopará austan við Cordova í S-Alaska. Víðisætt (Salicaceae).  

Sólbroddur ‘Laugardalur’ – Berberis thunbergii ‘Laugardalur’

Fremur harðgerður, þéttur, þyrnóttur, meðalstór runni. Hæð: 1,5 - 2,5 m. Nýtt lauf rauðleitt. Annars grænt - gulgrænt með rauðum jöðrum. Smá gul blóm, nokkur saman fyrri part sumars. Sólelskur. Þolir vel klippingu. Skærrauðir haustlitir í október - nóvember. Þrífst best í venjulegri garðmold. Hentar í raðir, þyrpingar, í limgerði og stakstæður. Í limgerði er hæfilegt millibil 60 - 70 sm. Annars 1 m. Yrkið er fræplanta af B. thunbergii 'Golden Ring' að talið er sem sáð var til í Grasagarði Reykjavíkur, Laugardal. Vegna þess hve sólbroddur 'Laugardalur' heldur laufinu lengi fram eftir hausti hefur hann stundum ranglega verið talinn sígrænn. Einn allra útbreiddasti broddurinn (Berberis spp.) hérlendis. Heimkynni tegundarinnar eru A-Asía þar á meðal Japan.

Strandavíðir / Gulvíðir – Salix phylicifolia ‘Strandir’ (Tröllatunga)

Mjög harðgerður, íslenskur, meðalhár runni (1,5 - 2,0 m). Laufið smágert, dökkgrænt og gljáandi. Gulir haustlitir. Sólelskur. Strandavíðir er mikið notaður í limgerði og skjólbelti. Venjulega eru gróðursett 3 stk/m í limgerði. Strandavíðir er þokkalega heilbrigður þó að stundum séu fiðrildalirfur fyrri part sumars til vandræða. Strandavíðir er í raun klón af gulvíði (S. phylicifolia) ættað frá Selárdal á Ströndum. Strandavíðir var gróðursettur á sínum tíma í garðinum að Tröllatungu við Steingrímsfjörð. Þaðan dreifðist svo strandavíðirinn áfram um landið. Strandavíðir er karlkyns og því er óþrifnaður af völdum fræullar ekki vandamál samanborið við t.d. brekkuvíði (S. phylicifolia 'Brekka'). Seldur berróta, 10 stk. í búnti og stakar plöntur í pottum. Fæst einnig í fjölpotta-bökkum.