Himalajaeinir / Keilubláeinir – Juniperus squamata ‘Blue Swede’

Fremur lágvaxinn, þéttur, sígrænn runni. Hæð um 50 - 70 sm en stundum hærri í góðu skjóli. Barrið ljósblá-grænt. Stundum aðeins brúnleitt á veturna. Sólelskur en þolir hálfskugga. 'Blue Swede' einirinn hentar í ker, blönduð beð með sígrænum gróðri, steinabeð, hleðslur, kanta og þess háttar.

Hindber – Rubus idaeus

Skriðull, sumargrænn hálfrunni. Hæð 1 - 2 m. Greinar ná tveggja ára aldri. Fyrra árið vaxa beinir trékenndir stönglar upp frá jörðu í fulla hæð. Seinna árið blómgast þeir og þroska ber. Síðan eru þeir dauðar. En alltaf koma upp nýir stönglar jafnharðan á hverju ári. Stönglar eru með beina, veikbyggða þyrna sem tæplega er hægt að meiða sig á. Laufblöð stakfjöðruð. Smáblöð 5 - 7 talsins á fyrsta árs greinum. Greinar á öðru ári bera smærri lauf með 3 - 5 smáblöðum. Laufblöð eru tennt og ydd, græn að ofan en ljós- eða nánast silfurhærð að neðanverðu. Blómin hvít, nokkur saman í klösum í lok maí eða í júní. Þvermál blóma um 1 cm. Hindberið er í raun samsett aldin úr nokkrum steinaldinum. Losnar auðveldlega fullþroska frá miðkjarnanum/stilknum þannig að smá hola er sjáanleg á aldininu/berinu. Klippið í burt dauðar greinar. Gróðursetjið í afmarkað rými til að forðast rótarskot um alla lóð. Tilvalið er að setja niður þil svona 40 sm niður í jarðveginn til að forðast dreifingu rótarskota. Einnig má rækta hindber í ílátum en þau þurfa frjóan og rakaheldinn jarðveg til að þroska ber. Setjið staðið hrossatað eða moltu saman við jarðveginn við gróðursetningu. Tilvalið er að setja lag af moltu í kringum ræktuð hindber á vorin. Villihindber henta til gróðursetningar í lúpínubreiður og skógarrjóður. Berin á villihindberjum eru smá en bragðgóð. Þau skríða mjög mikið út og geta verið til vandræða. Úrvalsyrki eins og 'Borgund' hafa stærri ber og skríða ekki eins mikið út. Hindberjarunnar virðast vera sjálffrjóvgandi. Runnarnir þola vel hálfskugga en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Yrki með stærri berjum henta betur til ræktunar í heimilisgörðum samanborið við villihindber. Hindber virðast eitthvað sá sér út hérlendis en fuglar sækja í berin. Heimkynni: Evrópa og Asía. Slæðingur hérlendis. Ræktuð víða um heim. Rósaætt (Rosaceae).  

Hjartatré – Cercidiphyllum japonicum

Fremur lítið tré hérlendis (3 - 6 m). Stundum runni. Þarf skjólgóðan og sólríkan stað til að þrífast. Þrífst í venjulegri garðmold. Laufið hjartalaga og rauðleitt fyrst á vorin og á vaxandi sprotum. Haustlitir bleikir. Karamelluilm leggur af laufinu á haustin. Blóm ekki áberandi og sjást sjaldan hérlendis. Sérbýlt. Þolir hálfskugga. Heppilegt og fallegt garðtré í skjólgóðum hverfum. Hætt við haustkali. Heimkynni: Kína og Japan.

Hlíðaramall / Hunangsviður – Amelanchier alnifolia

Harðgerður lágvaxinn - meðalstór, sumargrænn runni. Hæð 1,5 - 2,5 m. Laufið sporbaugótt - hringlaga, 2 - 5 cm á lengd og 1 - 4,5 cm á breidd, blágrænt. Blaðstilkur 0,5 - 2 cm á lengd. Blaðjaðrar tenntir ofan við miðju. Haustlitur gulur - rauðgulur. Blómin hvít í klösum snemmsumars (maí - júní). Fimm krónu- og bikarblöð. Blómin eru 2,5 - 5 cm í þvermál. Sagður sjálffrjóvga. Berin sem eru í raun berepli eru  5 - 15 mm í þvermál. Þau eru fyrst græn, svo fjólublá og loks svarblá fullþroska. Æt og bragðgóð hrá eða í sultur, bökur, þurrkuð og s.frv. Berin innihalda m.a. ýmis nauðsynleg steinefni. Fuglar sækja mjög í berin. Fremur hægvaxta. Hlíðaramall þrífst í allri venjulegri garðmold. Blandið gömlu taði eða moltu í jarðveginn fyrir gróðursetningu. Gott er að setja lag af moltu annars lagið í kringum eldri runna. Þolir hálfskugga en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Hentar í raðir, þyrpingar og blönduð beð með öðrum runnum og blómjurtum. Millibil um 1 m. Hentar einnig í villigarða og sumarhúsalóðir. Stundum ber á rótarskotum. Hlíðaramallinn okkar er allur ræktaður upp af íslensku fræi. Ein móðurplantan okkar er af fræi frá Skagway, Alaska. Nefnd um íslensk háplöntuheiti mælti með nafninu "hlíðaramall" en fram að því hafði runni þessi almennt gengið undir heitinu "hunangsviður". Hlíðin sem vísað er til mun vera Fljótshlíðin þar sem fyrsti hlíðaramallinn mun hafa verið gróðursettur hérlendis. Heimkynni: N-Ameríka, vestanverð. Rósaætt (Rosaceae).

Hnjúkarifs / Jöklarifs- Ribes glaciale

Harðgerður, þéttur, meðalhár runni. Sprotar og blaðstilkar áberandi rauðir. Haustlitur rauðgulur. Minnir annars á fjallarifs (Ribes alpinum). Börkur flagnar af í rauðbrúnum næfrum.  Hentar í limgerði, klippt eða óklippt. Þolir vel hálfskugga.

Hreiðurgreni / Sátugreni – Picea abies ‘Nidiformis’

Lágvaxinn, flatvaxinn, sígrænn, þéttur runni. Hæð um 50 sm. Breidd allt að 100 sm. Hægvaxta. Myndar engan topp. Barrið smágert, ljósgrænt - gulgrænt. Skjólþurfi og skuggþolið. Hentar í beð með sígrænum gróðri, sem undirgróður, ker í skjóli og hleðslur. Þrífst í allri venjulegri garðmold.

Hrossakastanía – Aesculus hippocastanum

Fremur viðkvæmt tré. Laufblöðin eru sérlega stór, samsett. Brum stór. Blómin eru hvít í uppréttum klösum. Aldinið þyrnótt kúla með stórri "hnetu" innan í. Hrossakastanía er tiltölulega sjaldgæf hérlendis. Í Reykjavík er til yfir 10 m hátt eintak. Hrossakastanía hefur blómstrað hérlendis en ekki þroskað aldin svo vitað sé. Hrossakastanía þrífs eingöngu á hlýjum og skjólgóðum stöðum í djúpum og frjóum jarðvegi. Ættuð úr fjalllendi á Balkanskaga en algeng í ræktun í Evrópu og víðar.

Hunangstoppur ‘Little Honey’ – Lonicera crassifolia ‘Little Honey’

Jarðlægur, sígrænn, hægvaxta dvergrunni. Blöðin smá, kringlótt og gljáandi. Dökkgræn en gjarnan vínrauð á veturna. Blómin gul, nokkur saman í krans miðsumars. Aldinið svart ber. Sólelskur en þolir hálfskugga. Nýlegur í ræktun og reynsla því takmörkuð. Hentar í hleðslur, kanta og ker í vel framræstum jarðvegi. Heimkynni: Kína.

Hvítgreni – Picea glauca – Nýfundnaland

All hávaxið, sígrænt, keilulaga tré. Barrið grágrænt - blágrænt. Fínlegra og ekki eins stingandi samanborið við sitkageni (Picea sitchensis). Hægvaxnara og mjóslegnara samanborið við sitkagreni. Hentar frekar inn til landsins en við sjávarsíðuna. Lyktar. Hvítgreni og sitkagreni mynda gjarnan kynblendinga sem kallast sitkabastarður eða hvítsitkagreni (Picea x lutzii). Blendingur þessi er algengur hérlendis. Hvítgrenið okkar er af fræi frá Nýfundnalandi.

Ígulrós ‘Fru Dagmar Hastrup’ – Rosa rugosa ‘Fru Dagmar Hastrup’

Harðgerð, meðalstór runnarós (1 -1,5 m). Blómin stór, einföld, ljósbleik og ilmandi. Sólelsk. Vind- og saltþolin. Stórar rauðar nýpur. Aðeins skriðul. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi. Má gjarnan vera sand- og malarborinn. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 - 100 sm millibili. Danskt yrki. Eitt besta yrkið til framleiðslu á nýpum. Nýpur má nýta í sultur, grauta og te. Þær eru mjög C-vítamínríkar.

Ígulrós ‘Hadda’ – Rosa rugosa ‘Hadda’

Harðgerð runnarós. Vaxtarlagið útbreitt. Hefur því þekjandi eiginleika. Hæð: 1 - 1,5 m. Blómin stór, hálffyllt, rauðfjólublá og ilmandi. Er með fyrstu ígulrósum að byrja að blómstra á sumrin. Blómgast fram á haust. Rauðar, flathnöttóttar  nýpur þroskast að hausti. Blaðstönglar og axlarblöð rauðleit. Gulbrúnir haustlitir. Sólelsk. Þrífst best í aðeins sendnum/grýttum og vel framræstum jarðvegi. Blandið lífrænu efni (búfjáráburði/moltu) saman við jarðveginn við gróðursetningu. 'Hadda' hentar í breiðuplantanir til að þekja yfirborð og sem jaðarplanta í trjábeðum. Einnig í blönduð runnabeð, brekkur og þess háttar. Rótarkerfið skríður lítið sem ekkert út. 'Hadda' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar (1931 - 2023) og er blendingur R. rugosa 'Rotes Meer' x R. kamtschatica. Kennd við eiginkonu Jóhanns, Hrafnhildi Kristínu Jónsdóttur (1935 - 2023) sem gjarnan var kölluð Hadda.

Ígulrós ‘Jóhanna’ – Rosa rugosa ‘Jóhanna’

Mjög harðgerð, fremur hraðvaxta, all stórvaxin runnarós. Hæð um 2 m. Greinar brúnar, talsvert þyrnóttar og gjarnan útsveigðar í endann á kröftugum sprotum. Laufin stakfjöðruð. Gulir haustlitir. Blómin einföld, all stór, rauðfjólublá og ilmandi með gulum fræflum. Blómgast í júlí - september. Rauðar, flathnöttóttar nýpur þroskast á haustin sem nýta má til manneldis. Vind- og saltþolin. Skríður út með rótarskotum. Þrífst og blómstrar mest á sólríkum stað í sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. 'Jóhanna' hentar í raðir og þyrpingar með um 1 m millibili. Hentar í brekkur, umferðareyjar, opin svæði, í jaðar skjólbelta og villigarða. Hentar eingöngu saman með öðrum gróðri sem þolir vel samkeppni eins og t.d. aðrar skriðular rósir og saman með skriðulum kvistum og hávöxnum fjölæringum. 'Jóhanna' mun vera kennd við Jóhann Pálsson grasafræðing og rósakynbótamann. Rósaætt (Rosaceae).